Nýr og breyttur Askur
Þann 2.september árið 1966 var Grill-inn Askur stofnaður, og er því einn af elstu veitingastöðum borgarinnar. Á þessum tíma hefur hann
þroskast og þróast og nú hefur hann hlotið nafnbótina Brasserie
Askur til undirstrikunar þeirri þróun sem hann hefur gengið í
gegnum.
En afhverju Brasserie?
Brasserie er samheiti yfir þægilega veitingastaði sem eru ekki of
formlegir ef svo má segja. Staðir sem fólki líður vel á hvernig sem
það er klætt. Brassier er milli staður, þ.e. ofar en Bistro en þrepi
neðar en fínn veitingarstaður, léttari og hressari og oft á tíðum
meira sóttur en dýrari veitingarstaðirnir.
Fyrir utan matseðill, býður Brasserie Askur upp á heitt og kalt
hlaðborð í hádeginu alla virka daga, ásamt glæsilegum salatbar,
sem er fjölbreyttur og framandi. Á sunnudagskvöldum er
margrétta steikarhlaðborð sem hefur notið mikilla vinsælda, þar
sem allir finna eithvað við sitt hæfi. |