

Njóttu jólanna á Aski
Jólahlaðborð Asksins 2026 í Reykjavík
Jólahlaðborð Asksins 2026 er klassískt og rausnarlegt jólahlaðborð með köldu borði, steikum, hefðbundnu meðlæti og fjölbreyttum eftirréttum.
Það er fátt notalegra en að njóta hátíðanna í góðum félagsskap með fjölskyldu og vinum. Á Aski bjóðum við ykkur í hlýlega stemningu þar sem hefðir og jólailmur taka á móti þér. Klassískir jólaréttir, huggulegt andrúmsloft og góð þjónusta tryggja að allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Við leggjum áherslu á gæði og fjölbreytni á sanngjörnu verði. Komið og leyfið okkur að sjá um veitingarnar á meðan þið eigið dýrmætar stundir með ykkar nánustu.
- Fimmtudaga til sunnudaga frá 13. nóvember til 27. desember
- Fyrri seta: 17:00–19:00
- Seinni seta: 20:00–22:00
- Fullorðnir: 11.900 kr.
- Börn 6–12 ára: 4.900 kr.
- Börn 5 ára og yngri: Frítt*
*Barnaverð gildir fyrir eitt barn með hverjum fullgreiðandi fullorðnum.

Jólahlaðborð 2026 – matseðill
Klassískir jólaréttir, vel útilátið hlaðborð og notaleg stemning á Brasserie Aski. Jólahlaðborðið hentar fjölskyldum, vinahópum og fyrirtækjum sem vilja njóta hátíðanna saman.
FORRÉTTIR
- Koníaksbætt villisveppasúpa
- Laufabrauð, súrdeigsbrauð & smjör
- Úrval síldarrétta & rúgbrauð
- Grafinn lax & sinnepssósa
- Reyktur lax & piparrótarsósa
- Nautacarpaccio, granatepli & klettasalat
- Sjávarréttarsalat
- Sveitapaté & Cumberland-sósa
- Hangikjöt & uppstúfur
AÐALRÉTTIR
- Grillað lambalæri
- Stökk purusteik
- Hægelduð kalkúnabringa
- Sælkera hnetusteik
MEÐLÆTI
- Kartöflugratín
- Sykurbrúnaðar kartöflur
- Uppstúfur & kartöflur
- Heimalagað rauðkál
- Grænar baunir & maís
- Waldorfsalat
- Brokkolísalat
- Rauðrófusalat með rúsínum
SÓSUR
- Portvíns- & villisveppasósa
- Béarnaisesósa
EFTIRRÉTTIR
- Ris à la mande & kirsuberjasósa
- Hvítsúkkulaðibrownie
- Súkkulaðimús í krukku með hindberjum
- Marengsterta Asksins
- Crème brûlée
- Smákökur, kleinuhringir & sælgæti













Jólahlaðborð fyrir fyrirtæki í Reykjavík
Er komið að jólahlaðborði vinnustaðarins?
Brasserie Askur tekur á móti bæði litlum og stórum fyrirtækjahópum yfir aðventuna. Hjá okkur fær hópurinn ríkulegt jólahlaðborð í afslöppuðu og notalegu umhverfi, með einfalt bókunarferli og reynslumiklu starfsfólki.
Askur hentar vel fyrir starfsmannahópa, deildir, félagasamtök og fyrirtæki sem vilja halda klassískt jólahlaðborð í Reykjavík án þess að fara í formlegt hótelumhverfi.
Ertu að bóka fyrir stærri hóp?
Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna lausa dagsetningu.
veislur@askur.is - 553-9700

Jól hjá Aski í 60 ár
Brasserie Askur opnaði árið 1966 og fagnar því 60 ára afmæli árið 2026.
Í sex áratugi hafa kynslóðir Reykvíkinga komið saman hjá Aski yfir góðum mat. Jólahald hefur lengi verið hluti af þeirri sögu og í ár höldum við sérstaklega upp á 60 ára afmæli staðarins.
Við ætlum þó ekki að flækja hlutina. Jólahlaðborð Asksins snýst áfram um það sama: klassískan jólamat, gott úrval og góða stund saman við borðið.
Askur hefur verið hluti af veitingasögu Reykjavíkur frá árinu 1966. Í sex áratugi hafa kynslóðir komið saman hjá okkur yfir góðum mat, og jólin eru engin undantekning.
Jólahlaðborð á besta stað í Reykjavík
Brasserie Askur er að Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík. Staðsetningin á Suðurlandsbraut er þægileg og miðsvæðis, með gott aðgengi frá öllum hlutum höfuðborgarsvæðisins.
Algengar spurningar (FAQ)
Hvað kostar jólahlaðborð Asksins 2026?
Verð fyrir fullorðna er 11.900kr. Fyrir krakka á aldursbilinu 6 til 12 ára er verðið 4.900kr. og frítt er fyrir börn 5 ára og yngri.
Hvaða daga er jólahlaðborðið í boði?
Jólahlaðborðin eru í boði öll fimmtudags- til sunnudagskvöld frá 13. nóvember til 27. desember.
Hvenær byrjar jólahlaðborðið?
Jólahlaðborðin byrja klukkan 17:00.
Getið þið tekið á móti stórum fyrirtækjahópum?
Já. Salurinn okkar tekur rúmlega 100 gesti í sæti og ef bókað er með nægum fyrirvara getur vel verið að við getum komið þínum hóp fyrir.
Hvernig bóka ég jólahlaðborð fyrir fyrirtæki?
Best er að hafa samband við okkur á veislur@askur.is eða með því að fylla út þetta form.
Jólabrunch Asksins
Hentar betur fyrir þinn hóp að mæta fyrr um daginn? Afslappaður jólabrunch með brunch-réttum, jólamat og eftirréttum.
Viltu halda jólaveisluna annars staðar?
Við bjóðum einnig upp á jólaveisluþjónustu Asksins fyrir heimili, fyrirtæki og veislur.