Skötuhlaðborð í Reykjavík á Þorláksmessu 2026
23. desember 2026 · Þorláksmessa · 7.990 kr. á mann
Komdu í skötuveislu á Brasserie Aski á Þorláksmessu. Skötuhlaðborðið okkar á Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík býður upp á skötu, tindabykkju og hefðbundið meðlæti í hlýlegu umhverfi.
Á hlaðborðinu eru einnig saltfiskur, plokkfiskur, lax, síld og eftirréttir. Njóttu stundar með fjölskyldu, vinum eða vinnufélögum áður en jólin ganga í garð. Framreiðslutímar verða kynntir síðar.

Matseðill skötuhlaðborðsins
Forréttir
Graflax, reyktur lax og tvær tegundir af síld.
Aðalréttir
Skata, tindabykkja, saltfiskur og plokkfiskur.
Meðlæti
Kartöflur, gulrætur, rófur, vestfirskur hnoðmör, hamsatólg, smjör og bráðið smjör.
Rúgbrauð, laufabrauð og súrdeigsbrauð.
Eftirréttir
Ris à l’amande og frönsk súkkulaðikaka.
Skötuveisla fyrir fjölskyldur og vinahópa
Safnaðu þínum hópi saman og gerðu skötuveisluna á Aski að hluta af jólaundirbúningnum. Hafðu samband ef þú vilt fá nánari upplýsingar eða ræða komu hóps.
Hvar fæ ég skötu á Þorláksmessu í Reykjavík?
Á Brasserie Aski færðu skötu á Þorláksmessu, 23. desember 2026. Skötuhlaðborðið er á Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík. Bókaðu borð í gegnum Dineout.
Sími: 553-9700 · Netfang: askur@askur.is
Spurt og svarað um skötuveisluna
Hvenær og hvar er skötuhlaðborðið?
Skötuhlaðborðið verður 23. desember 2026 á Brasserie Aski, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík. Framreiðslutímar verða kynntir síðar.
Hvað kostar skötuhlaðborðið?
Verðið er 7.990 kr. á mann. Forréttir, aðalréttir, meðlæti, brauð og eftirréttir eru innifalin.
Er annað í boði en skata?
Já, á hlaðborðinu eru einnig saltfiskur, plokkfiskur, graflax, reyktur lax og síld.