Sunnudags steikhlaðborð á Askinum
Í áratugi hafa Íslendingar leitað á Brasserie Askur þegar tilefni er til að gera vel við sig. Askur, stofnaður árið 1966, er einn af elstu veitingastöðum Reykjavíkur þar sem hefð, góður matur og notaleg stemning fara saman.
Steikhlaðborðið býður upp á safaríkt kjöt, klassískar sósur og ríkulegt úrval sem hefur gert staðinn að uppáhaldi hjá kynslóðum gesta.
Á steikhlaðborðinu byrjar upplifunin á fjölbreyttum salatbar með fersku grænmeti og vandaðri réttum á borð við carpaccio, reyktan og grafinn lax, ásamt súpu og nýbökuðu brauði. Á aðalhlaðborðinu er úrval af kjöti, þar á meðal nautsteik, lambalæri, purusteik og kalkúnabringa, með meðlæti eins og kartöflugratíni, rótargrænmeti og bökuðum kartöflum. Bragðupplifunin er fullkomnuð með klassískum sósum – sveppasósu og okkar vel þekktu béarnaise sósu.
Að lokum bíður eftirréttahlaðborð með marengstertu, franskri súkkulaðiköku og ýmsu öðru góðgæti. Ljúfur endir á góðri máltíð.

Steikhlaðborð í Reykjavík í 60 ár
- Öll sunnudagskvöld
- Tími: 17:00 - 21:30
- Verð: 8.990 kr á mann









