Veisluþjónusta fyrir veislur og viðburði í Reykjavík

Steikarhlaðborð, grill og pinnamatur frá Aski fyrir veislur í Reykjavík og nágrenni.
Fyrir fyrirtæki, fermingar, brúðkaup, afmæli, útskriftir og stærri hópa.

Brasserie Askur býður upp á rausnarlega veisluþjónustu fyrir allskonar tilefni. Hvort sem þú vilt glæsilegt steikarhlaðborð, grillveislu á staðnum eða fjölbreyttan pinnamat, þá hjálpum við þér að setja saman lausn sem hentar hópnum og tilefninu.

Lágmark 40 manns.

Frí heimsending innan höfuðborgarsvæðisins.

Hafðu samband við askur@askur.is til þess að bóka þína veislu eða smelltu á hnappinn hér að neðan.

Senda Fyrirspurn
Steikarhlaðborð í Reykjavík frá Brasserie Askur

Veldu réttu lausnina fyrir þína veislu

Við bjóðum upp á þrjár mismunandi lausnir eftir tilefni, stærð hóps og stemningu. Hér fyrir neðan getur þú valið það sem hentar best.

Steikarhlaðborð

Okkar sérgrein.
Alvöru steikarhlaðborð þar sem kjötið er í forgrunni. Við komum á staðinn, skerum og framreiðum fyrir gesti. Þetta er vinsæl lausn fyrir stærri veislur þar sem þú vilt bjóða upp á fulla matarupplifun.
Hentar sérstaklega fyrir:

  • Fyrirtækjaviðburði
  • Brúðkaup
  • Stærri afmæli
Grill veisluþjónusta

Grillveisla á staðnum þar sem við sjáum um eldun og framsetningu. Skapar lifandi og afslappaða stemningu þar sem maturinn er hluti af upplifuninni.

Hentar sérstaklega fyrir:

  • Sumarveislur
  • Veiðina
  • Sumarbústaðinn
  • Fyrirtæki
Pinnamatur

Fjölbreytt úrval af smáréttum sem er auðvelt í framreiðslu og hentar vel þar sem gestir vilja ganga um og njóta í rólegu umhverfi. Vinsæl og þægileg lausn fyrir minni og meðalstóra hópa.

Hentar sérstaklega fyrir:

  • Fermingar
  • Afmæli
  • Útskriftir
  • Minni viðburði

Hvað er innifalið

Við leggjum áherslu á að gera veisluna eins einfalda og mögulegt er fyrir þig. Við sjáum um matinn frá upphafi til enda, sérsniðið að þínum þörfum.

  • Við getum komið á staðinn með allt sem þarf
  • Við eldum og/eða framreiðum matinn
  • Ríkulegt úrval af kjöti, meðlæti og sósum eftir óskum
  • Fagleg framsetning og þjónusta
  • Frágangur að lokinni veislu

Svona virkar þetta

1. Þú sendir okkur fyrirspurn
Segðu okkur frá tilefninu, fjölda gesta og dagsetningu

2. Við setjum saman tilboð
Við mælum með lausn sem hentar hópnum og tilefninu

3. Við sjáum um matinn á staðnum
Við mætum, eldum og framreiðum

4. Þú nýtur veislunnar
Við sjáum einnig um frágang

Fá tilboð

Hentar fyrir

Veisluþjónusta frá Brasserie Askur hentar fyrir fjölbreytt tilefni – allt frá smærri samkomum til stærri viðburða.

  • Fermingar – einföld og vinsæl lausn fyrir fjölskyldur
  • Brúðkaup – ríkuleg og vönduð matarupplifun
  • Afmæli – þægileg lausn fyrir stærri hópa
  • Útskriftir – létt og skemmtilegt fyrir gesti
  • Fyrirtækjaviðburði – áreiðanleg þjónusta fyrir starfsfólk og viðskiptavini
  • Veiðiferðin - njóttu dagsins og láttu okkur sjá um matinn
  • Ættarmót - gott úrval sem hentar fjölbreyttum hópi og gerir samverustundina einfaldari
  • Erfidrykkjur - hlý og fagleg þjónusta þar sem við leggjum áherslu á einfaldleika og virðingu

Af hverju velja Brasserie Askur

Með rætur aftur til ársins 1966 er Askurinn þekktur fyrir gæði, áreiðanleika og rausnarlega veitingamenningu. Veisluþjónustan okkar byggir á sömu styrkleikum, góðum mat, faglegri þjónustu og einföldu ferli sem gerir þér kleift að njóta viðburðarins.

  • Starfrækt síðan 1966
  • Einn þekktasti veitingastaður landsins
  • Reynsla af fjölbreyttum veislum og viðburðum
  • Þekkt fyrir gæði, rausn og áreiðanleika
  • Sömu gæði og vinsæla steikhlaðborðið hjá Aski

Algengar spurningar

  • Hvað kostar veisluþjónusta? Verð fer eftir umfangi en pinnamatur byrjar frá um 2.500 kr á mann og steikarhlaðborð frá 6.290 kr.
  • Getið þið mætt með borðbúnað? Já við getum mætt með allan þann borðbúnað sem þarf fyrri auka gjald.
  • Hversu margir þurfa að vera? Lágmarksfjöldi er 40 manns.
  • Komið þið á staðinn? Já, á steikarhlaðborðum komum við á staðinn og sjáum um eldun og framreiðslu. Pinnamaturinn er sóttur tilbúinn til framsetningar á Brasserie Ask, suðurlandsbraut 4.

Gerðu veisluna einfaldari

Við sjáum um matinn, þú nýtur dagsins. Hafðu samband og við setjum saman lausn sem hentar þínu tilefni.

Fá tilboð