
Októberfest Veisla frá Aski!
Ekta Oktoberfest-stemning með þremur tegundum af pylsum, mini pretzel, purusteikarborgurum, kjúklingaspjótum og klassísku þýsku meðlæti.
Tilvalið fyrir starfsmannafélög, fyrirtæki og hópa sem vilja gera Oktoberfest einfalt og skemmtilegt.
5.490 kr. á mann
Lágmark 40 manns • Maturinn afhentur tilbúinn á hlaðborðið • Vegan útfærsla í boði fyrir gesti sem þess óska
Viltu fá tilboð eða greiða með reikningi?
Fyrir fyrirtæki, stærri hópa eða ef þú hefur spurningar varðandi pöntunina, sendu okkur línu á veislur@askur.is og við aðstoðum þig.

Pylsur, pretzel og ekkert vesen
Við sjáum um matinn og undirbúninginn. Maturinn er afhentur í hentugum veislubökkum, tilbúinn til þess að setja upp á hlaðborð þegar gestirnir mæta.
Pakkinn er hugsaður sem ríkuleg máltíð þar sem gestir geta smakkað nokkrar tegundir af pylsum ásamt heitum smáréttum, pretzel og klassísku Oktoberfest-meðlæti.
Hvað er í Oktoberfest pakkanum?
- Þrjár tegundir af pylsum
Bratwurst, Kielbasa og pólsk pylsa - Mini purusteikarborgari
Brioche-brauð, purusteik Asksins, stökk pura, sinnep, pikklaður laukur og súr gúrka - Kjúklingaspjót
Með chilli mayo - Mini pretzel
- Kartöflusalat að þýskum hætti
- Súrkál
- Currywurst sósa og bjórostasósa
Svona virkar þetta
1. Sendu okkur fyrirspurn
Segðu okkur dagsetningu og áætlaðan fjölda gesta.
2. Við staðfestum bókunina
Við förum yfir fjölda, afhendingartíma og séróskir.
3. Við eldum fyrir veisluna
Maturinn er útbúinn samdægurs og pakkaður fyrir ykkur.
4. Þið sækið og veislan getur byrjað
Einfalt, fljótlegt og engin þörf á eldun á staðnum.
Algengar spurningar
Hversu marga þarf að panta fyrir?
Lágmarksfjöldi fyrir Oktoberfest pakkann er 40 manns.
Er hægt að fá vegan mat?
Já. Við getum útbúið vegan útfærslu fyrir þá gesti sem þess óska. Látið okkur vita fjöldann þegar endanlegur gestafjöldi er staðfestur.
Þarf að hita matinn?
Maturinn er afhentur tilbúinn til framreiðslu samkvæmt umsömdum afhendingartíma.
Er hægt að fá pakkann afhentan?
Hafðu samband ef óskað er eftir heimsendingu og við skoðum hvað hentar hverju sinni.
Hvenær þarf að panta?
Við mælum með að bóka með góðum fyrirvara, sérstaklega fyrir föstudaga og laugardaga í september og október.
Get ég pantað án þess að greiða strax?
Já. Sendu okkur fyrirspurn á veislur@askur.is ef þú vilt fá tilboð, greiða með reikningi eða ræða séróskir áður en pöntun er staðfest.
